Events
Fréttagreinar
Með hjálp vefgáttarinnar fékk atvinnuleitandi vinnu eftir bara tvær vikur. Eftir hverju er maður þá að bíða?
Þegar Arnaud Borens fá Belgíu setti ferilskrána sína á Eures-gáttina átti hann ekki von á að hann myndi landa draumastarfinu eftir bara tvær vikur. Þó að þetta sé óvenju stuttur tíma hafa þúsundir fengið vinnu í gegnum starfsemi Eures og gáttin er frábært staður til að byrja.
Þjónusta Eures skipti sköpum fyrir mig. Hún opnaði mér dyr og hefur gefið mér tækifæri til að taka stóra skrefið í starfsferli mínum – að finna fyrsta starfið erlendis,“ segir Arnaud.
Arnaud er 24 og hefur nýlega útskrifast með B.A. gráðu í viðskiptastjórnun frá ICHEC í Brussel. Hann er tvítyngdur á frönsku og þýsku og lærði ensku í náminu. „Ég er viss um að málakunnátta mín hafi komið mér til góða við atvinnuleitina. Ég sendi ferilskrána mína á frönsku, þýsku og ensku.“
Allt ferlið eftir að hann sendi inn ferilskrána var nokkuð einfalt. Ráðningarfulltrúi hafði samband við hann og benti honum á nokkrar lausar stöður. „Ég valdi þrjár og fór í viðtöl viku seinna, eitt í síma og tvö um Skype.“
Úr því komu tvö atvinnutilboð. „Ég valdi stöðu greiningarfullrúa fyrir samfélagsmiðla í Lissabon og fór þangað í byrjun janúar,“ segir Arnaud, sem vinnur nú fyrir Teleperformance.
„Ég elska þessa vinnu,“ segir hann, „Ég sé um að greina viðbrögð viðskiptavina okkar hvað varðar merki, þjónustu og vörur og skrifa skýrslu með ráðleggingum þar sem fram kemur myndræn lýsing á þeim áhrifum sem merkið hefur í mismunandi miðlum.“
En hvað er framundan hjá Arnaud? Hann vill bæta portúgölsku við tungumálalistann sinn og sjá um fleiri verkefni. „Þó svo að vinnan fari fram á ensku er ágætt fyrir mig að læra tungumálið svo ég aðlagist betur.“
Hann hlakkar til að byrja í tungumálanámskeiðinu sem fyrirtækið býður en hann er engu að síður byrjaður að tala við samstarfsfólkið. „Málið er að láta bara vaða og treysta á að fólk mæti þér á miðri leið þegar þú ert að læra nýtt mál.“
Ef þú hefur nýlega lokið námi en ert í starfsleit, eða er þegar í vinnu en ert í leit að tilbreytingu þá skaltu fylgja eftirfarandi skrefum til að útbúa ferilskrá fyrir Eures og senda hana á gáttina. Þú getur einnig ráðfært þig við Eures-fulltrúa í nágrenni við þig til að frá ráðleggingar um hvernig auka möguleika þína og aðrar upplýsingar.
„Ég myndi mæla með því fyrir alla í atvinnuleit að skrá sig hjá Eures, velja áhugasvið sitt af kostgæfni og senda ferilskrána sína inn á nokkrum tungumálum ef mögulegt er til að auka möguleika sína,“ segir Arnaud að lokum.
Eures býður upp á fleiri tól svo þú skalt kíkja á á kynninguna um Eures eða nýttu þér síðuna Hjálp og stuðningur til að sjá hvernig við getum hjálpað þér og komið þér af stað!
Tengdir hlekkir:
Ein ferilskrá – 28 lönd: útbúðu ferilskrá sem nær til allra Evrópubúa
Nánari upplýsingar:
Finna Eures-ráðgjafa
Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum
Vinnugagnagrunnur Eures
Þjónusta Eures fyrir atvinnurekendur
Viðburðadagatal Eures
Næstu viðburðir á Netinu
Eures á Facebook
Eures á Twitter
Eures á LinkedIn
Eures á Google+
Fyrirvari: Hvorki Eures né framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa lýst yfir sérstökum stuðningi við ofangreindar heimasíður þriðju aðila.
"…Í BRENNIDEPLI" greinunum er ætlað að veita notendum EURES vefgáttarinnar innsýn inn í þróun mála og það sem er efst á baugi hverju sinni. Ennfremur er þessum greinum ætlað að örva umræður og skoðanaskipti. Ekki er víst að þær tjái skoðanir Framkvæmdastjórnar Evrópu.