Print








Single Market Award 2010

Myndband
SOLVIT Documentary







Frásagnir af velgengni

SOLVIT aðstoðar breskt félag við að „vega sig“ inn á franskan markað

Breskur framleiðandi sjúkravoga vildi útvíkka markað sinn til Frakklands. Félagið seldi þegar framleiðslu sína í Bretlandi og öðrum ESB-löndum í samræmi við reglur ESB. Engu að síður neituðu frönsk yfirvöld að viðurkenna vörurnar á mörkuðum í Frakklandi og fóru fram á að frekari prófanir yrðu gerðar. Félagið reyndi, í meira en ár, að fá vogirnar viðurkenndar og bað loks SOLVIT í Bretlandi um aðstoð. Breska félagið og SOLVIT í Bretlandi unnu náið saman að því að tryggja markaðsaðgang fyrir framleiðsluna í Frakklandi á nokkrum vikum. Félagið hefur upplýst að SOLVIT hafi hjálpað því að koma í veg fyrir umtalsvert tap.

Málið leyst á innan við 11 vikum.

SOLVIT aðstoðar breskt félag við að „vega sig“ inn á franskan markað


SOLVIT opnar dyrnar fyrir pólskum iðjuþjálfa á Írlandi

SOLVIT opnar dyrnar fyrir pólskum iðjuþjálfa á Írlandi

Pólskur iðjuþjálfi hugðist starfa á Írlandi og sótti um að menntun hans og hæfi yrðu viðurkennd. Engu að síður neituðu írsk yfirvöld að fjalla um pólskt prófskírteini iðjuþjálfans þar eð Heimssamband iðjuþjálfa (WFOT) hefði ekki viðurkennt það. Þessi krafa fór í bága við löggjöf ESB. SOLVIT fékk því framgengt að til þess bær írsk stofnun féllst á umsóknina og lýsti því jafnframt yfir að héðan í frá yrðu allar umsóknir, m.a. þær sem ekki hefðu hlotið samþykki Heimssambands iðjuþjálfa, teknar fyrir og metnar.

Málið leyst á innan við 13 vikum.


SOLVIT gerir ferðamönnum kleift að taka þýskar skemmtisnekkjur á leigu á Ítalíu

Þýskt fyrirtæki leigir ferðamönnum á Ítalíu fjórar skemmtisnekkjur sem sigla undir þýskum fána. Eigandi fyrirtækisins var sektaður fyrir að láta hjá líða að skrá leigusnekkjur sínar hjá viðkomandi hafnaryfirvöldum samkvæmt nýlegum ítölskum reglugerðum. Að fimm mánuðum liðnum, eftir ítrekaðar tilraunir til þess að fá snekkjurnar skráðar, var fullyrt við eiganda fyrirtækisins að því aðeins mætti skrá snekkjurnar að fyrirtækið yrði stofnsett á Ítalíu. SOLVIT á Ítalíu hafði afskipti af málinu og greindi frá því að þetta skilyrði samræmdist ekki löggjöf ESB og að fyrrnefndum yfirvöldum bæri að taka gilda skráningu hjá Þýska verslunarráðinu. Allar fjórar skemmtisnekkjurnar voru skráðar og leyfi til útleigu gefin út. Málið leyst á innan við 9 vikum.

SOLVIT gerir ferðamönnum kleift að taka þýskar skemmtisnekkjur á leigu á Ítalíu

SOLVIT tryggir ferðamönnum jafnan aðgangseyri að klaustrum í Rúmeníu

SOLVIT tryggir ferðamönnum jafnan aðgangseyri að klaustrum í Rúmeníu

Franskur ríkisborgari kvartaði yfir því að ferðamönnum væri mismunað þegar greiða ætti aðgangseyri að klaustrum í Rúmeníu. Útlendingum var gert að greiða tvöfalt hærra gjald fyrir aðgöngumiða en rúmenskir ríkisborgarar þurftu að greiða. Þar eð þetta braut í bága við meginreglur ESB taldi SOLVIT-miðstöð Rúmeníu kirkjuyfirvöld á að krefja alla ferðamenn um sama gjald fyrir aðgang að klaustrunum. Málið leyst á innan við 9 vikum.

SOLVIT VER RETT BULGARSKS RIKISBORGARA TIL SJUKRATRYGGINGA

Búlgarskur ríkisborgari hafði stundað atvinnu í Frakklandi í tíu ár og greitt iðgjöld til franskra sjúkratrygginga. Þá sneri hann aftur til Búlgaríu og hugðist ganga inn í búlgarska sjúkratryggingakerfið. Samt sem áður var umsókn hans hafnað og hann beðinn að greiða ógreiddar skuldir til þess að geta öðlast rétt sinn til sjúkratrygginga á ný. SOLVIT í Búlgaríu útskýrði fyrir þar til bæru yfirvaldi í Búlgaríu að þar eð viðkomandi ríkisborgari hefði greitt iðgjöld sín í Frakklandi bæri honum réttur, samkvæmt lögum ESB, til sjúkratrygginga í Búlgaríu án nokkurra aukagjalda. Málið leyst á innan við tveimur vikum.

SOLVIT VER RETT BULGARSKS RIKISBORGARA TIL SJUKRATRYGGINGA

SOLVIT OPNAR LEIÐ VASKA FRÁ RÚMENÍU INN Á MARKAÐ Í SLÓVAKÍU

SOLVIT OPNAR LEIÐ VASKA FRÁ RÚMENÍU INN Á MARKAÐ Í SLÓVAKÍU

Tékkneskt fyrirtæki dreifir byggingavörum í Slóvakíu, þ.m.t. vaskar frá Rúmeníu. Framleiðsluvaran var flutt inn til Tékklands og prófuð af viðurkenndum tékkneskum aðila. Samt sem áður gaf verslunareftirlit Slóvakíu fyrirmæli um að fjarlægja vöruna af markaði nema fyrirtækið legði fram samræmisvottorð sem rúmenski framleiðandinn gæfi út. SOLVIT fullvissaði hlutaðeigandi yfirvöld um að tékkneska samræmisvottorðið dygði til að selja vaskana í Slóvakíu. Vörurnar voru settar í sölu án tafar. Málið leyst á innan við sex dögum.

SOLVIT hjálpar ítölskum augum að sjá betur gegnum austurrísk gleraugu.

Austurrískur sjóntækjafræðingur með austurrískt prófskírteini hugðist opna útibú í Suður-Týról á Ítalíu. Ítölsk yfirvöld höfnuðu umsókn hans um viðurkenningu á þeirri forsendu að prófskírteini hans samræmdust ekki kröfum sem Ítalir gerðu til sjóntækjafræðinga. SOLVIT gat sannfært hlutaðeigandi yfirvöld um að viðurkenna bæri prófskírteini sjóntækjafræðingsins til þess að gera honum kleift að bjóða fram þjónustu sína í Suður-Týról. Málið leyst á innan við 10 vikum.

SOLVIT gerir Maltverjum kleift að drekka norskt vatn við þorsta sínum.

Maltnesk tollyfirvöld fóru fram á að norskt félag, sem flytur út uppsprettuvatn, sýndi fram á að framleiðsla þess samræmdist viðskipta- og heilbrigðiskröfum ESB. Þar sem félagið stundaði þegar útflutning á uppsprettuvatni sínu til ýmissa ESB-landa gat SOLVIT sýnt fram á að fram komin krafa samræmdist ekki reglum ESB og opnaði þannig frjálst flæði norsks uppsprettuvatns inn á matlneskan markað. Málið leyst á innan við 7 vikum.

TÉKKNESKUM RÍKISBORGARA ER HEIMILAÐ AÐ KOMA SÉR FYRIR Í ÞÝSKALANDI SEM SJÁLFSTÆTT STARFANDI STARFSMANNI Í BYGGINGARIÐNAÐI.

Tékkneskur ríkisborgari vildi koma sér fyrir í Þýskalandi sem sjálfstætt starfandi starfsmaður í byggingariðnaði. Hlutaðeigandi þýsk staðaryfirvöld héldu því fast fram að hann þyrfti atvinnuleyfi til þess að geta boðið fram þjónustu sína í byggingariðnaði en neituðu að veita honum slíkt leyfi. SOLVIT í Þýskalandi gerði viðkomandi yfirvöldum grein fyrir því að sjálfstætt starfandi starfsmenn þyrftu ekki atvinnuleyfi og gerði ráðstafanir til þess að tékkneski starfsmaðurinn fengi leyfi til staðfestu. Lausn fundin á innan við fjórum vikum.

FRAKKLAND RYÐUR HINDRUNUM ÚR VEGI SEM TAKMÖRKUÐU MARKAÐSAÐGANG FYRIR AUSTURRÍSKAN OST.

Frönsk yfirvöld gáfu frönskum innflytjanda austurrískra osta fyrirmæli um að endursenda vörusendingu osta til Austurríkis þrátt fyrir að sama framleiðsluvara hefði þá þegar verið seld í Frakklandi. Frönsk yfirvöld fundu að sterkju í ostinum og að því að orðunum „de montagne“ hafði verið aukið við vöruheitið. Ákvörðunin var byggð á franskri löggjöf sem var í ósamræmi við lög ESB þar eð heitið „de montagne“ nýtur ekki verndar og sterkjan í ostinum stofnar ekki lýðheilsu í hættu. SOLVIT gat sannfært frönsk yfirvöld um að þeim bæri að veita framleiðsluvörunni óheftan markaðsaðgang. Lausn fundin á innan við 12 vikum.

LITHÁÍSKUR RÍKISBORGARI FÆR VOTTORÐ SEM HEIMILAR HONUM AÐ GANGA Á NÝ Í HJÓNABAND Í ÞÝSKALANDI.

Þýskur ríkisborgari og litháísk brúður hans vildu ganga í hjónaband í Þýskalandi. Þar eð brúðurin var áður gift og fráskilin í Litháen var nauðsynlegt að parið framvísaði útfylltu eyðublaði sem staðfesti skilnaðinn. Til þess bær réttur neitaði parinu um nauðsynlegt skjal þar eð reglugerðin, sem fyrrnefnd krafa er byggð á, hefur ekki enn verið leidd í litháísk lög. Eftir að SOLVIT hafði afskipti af málinu gaf rétturinn vottorðið út og sendi skjólstæðingnum. Lausn á innan við viku.

SOLVIT Í FRAKKLANDI AÐSTOÐAR HOLLENSKAN RÍKISBORGARA VIÐ AÐ FÁ ATVINNULEYSISBÆTUR.

Hollenskur ríkisborgari var starfsmaður þýsks félags en hafði verið sendur til starfa í Frakklandi. Er ráðningarsamningur hans rann út varð hann atvinnulaus og sótti um atvinnuleysisbætur í Frakklandi, þar sem hann var búsettur. Frönsk yfirvöld höfnuðu umsókn hans á þeirri forsendu að hann hefði aldrei starfað í Frakklandi. Í reynd hafði hann starfað í Frakklandi í 16 mánuði og greitt tekjuskatt þar. Hollenski ríkisborgarinn gat ekki breytt ástandinu, eins og það var, einn síns liðs. Með aðstoð SOLVIT endurskoðuðu frönsk yfirvöld samt afstöðu sína og veittu honum atvinnuleysisbætur. Lausn á innan við 8 vikum.

SOLVIT RYÐUR ÚR VEGI VIÐSKIPTAHINDRUNUM Á SLÓVAKÍSKUM MARKAÐI FYRIR SLÖKKVITÆKI.

Slóvakískar reglur um sölu slökkvitækja mæla fyrir um að framleiðendum beri að þjálfa viðskiptavini í notkun þessara framleiðsluvara. Samkvæmt reglunum er ennfremur gerð krafa um að framleiðendur eða viðurkenndir fulltrúar þeirra, sem hafa staðfestu lögum samkvæmt í Slóvakíu, geti einir staðið að þessari þjálfum. Tékkneskur framleiðandi slökkvitækja lagði fram kvörtun hjá SOLVIT þess efnis að hér væri um viðskiptahindrun að ræða og SOLVIT-miðstöðin í Tékklandi féllst á að fyrrnefnd takmörkun bryti í bága við reglur ESB um innri markaðinn.

Slóvakíska SOLVIT-miðstöðin gat tryggt tékkneska félaginu heimild til þess að annast þjálfun í Slóvakíu án þess að nauðsyn bæri til að skrá það þar í landi. Ennfremur hefur Slóvakía, í því skyni að koma í veg fyrir frekari atvik af þessu tagi, skuldbundið sig til þess að breyta innlendum lögum um slökkvitæki og samræma lögum ESB. Lausn á innan við 13 vikum.

ÞÝSKUR SJÚKRATRYGGJANDI GREIÐIR FRÖNSKUM RÍKISBORGARA BÆTUR VEGNA MEÐGÖNGU OG FÆÐINGAR.

Kona nokkur, franskur ríkisborgari, hafði stundað atvinnu í Þýskalandi. Eftir að ráðningarsamningur hennar rann út skráði hún sig sem konu í atvinnuleit, fyrst í Þýskalandi og síðar í Frakklandi, þangað sem hún sneri aftur og ól barn sitt. Bæði þýsku sjúkratryggingarnar og frönsku almannatryggingarnar lýstu því hins vegar yfir að þeim bæri ekki að greiða bætur vegna meðgöngu og fæðingar í þessu tilviki. Eftir að SOLVIT lét málið til sín taka staðfestu þýsk yfirvöld á sviði atvinnubóta að þýska heilsugæslan hefði málið með höndum. Sjúkratryggingarnar sinntu skyldu sinni og greiddu bætur vegna meðgöngu og fæðingar. Lausn fundin á innan við 8 vikum.

SOLVIT Í BELGÍU FÆR FRAM VIÐURKENNINGU Á MENNTUN OG HÆFI FRANSKS EITUREFNAFRÆÐINGS.

Belgísk yfirvöld neituðu frönskum eiturefnafræðingi, með franskt prófskírteini og tveggja ára starfsreynslu á Ítalíu, um viðurkenningu á menntun hans og hæfi. Rökin fyrir neituninni voru þau að umsækjandinn hafði fengið ófullnægjandi einkunnir fyrir tiltekna námsáfanga. SOLVIT í Belgíu gat sannfært yfirvöldin um að þar eð einkunnirnar hefðu dugað til þess að fá prófskírteinið og af þeirri ástæðu að umsækjandinn gat sýnt fram á nægilega starfsreynslu myndi það fara í bága við lög ESB að neita honum um viðurkenningu. Umsækjandanum barst jákvæð niðurstaða innan 9 vikna.

BRESKU FÉLAGI BERST ENDURGREIÐSLA Á VIRÐISAUKASKATTI FRÁ SPÁNI.

Breskt félag hafði útvegað vörur til Spánar og átti rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts frá spænskum yfirvöldum. Félagið lagði fram kröfu sína í desember 2003. Að 10 mánuðum liðnum hafði hvorki borist endurgreiðsla né skýring verið gefin á töfinni. SOLVIT lét málið til sín taka og útskýrði málavöxtu sem leiddi til þess að félaginu barst endurgreiðslan innan skamms. Lausn fundin á innan við 14 vikum.

SOLVIT AÐSTOÐAR SÆNSKA EKKJU VIÐ AÐ FÁ EFTIRLIFENDALÍFEYRI Í GRIKKLANDI.

Stjórnsýslutálmar í Grikklandi komu í nokkur ár í veg fyrir að kona nokkur, sænskur ríkisborgari, fengi eftirlifendalífeyri sem henni bar eftir að grískur eiginmaður hennar lést. Grísk yfirvöld tóku ekki hjónavígsluvottorðið sem gilda sönnun og kröfðust þess að sænska ekkjan skráði hjónavígsluna sjálf í eigin persónu í Aþenu. SOLVIT í Grikklandi aðstoðaði hana við að uppfylla öll formsatriði til þess að hún gæti fengið lífeyri sinn. Málið leyst á innan við 10 vikum.

LETTNESKUR BÍLAINNFLYTJANDI FÆR AÐSTOÐ VIÐ AÐ SKRÁ NOTAÐA BÍLA KEYPTA Í ÞÝSKALANDI.

Lettneskt fyrirtæki keypti nokkra notaða bíla af bandaríska hernum í Þýskalandi á uppboði sem þýskt félag stóð fyrir. Skráningarstofa ökutækja í Lettlandi hafnaði skráningarskjölum, sem þýska félagið afhenti, á þeirri forsendu að þau væru ekki gild eftir 1. maí 2004. Lettneska fyrirtækinu var vísað aftur til þýskra yfirvalda til þess að það mætti fá önnur skjöl en varð ekki ágengt. SOLVIT í Lettlandi hafði samband við starfsmenn Skráningarstofu ökutækja í Lettlandi og sannfærði þá um að skjölin væru gild samkvæmt lögum ESB. Lausn fundin á innan við viku.

TÉKKNESKUR RÍKISBORGARI Á EFTIRLAUNUM FÆR Í HENDUR NAUÐSYNLEGT EYÐUBLAÐ TIL ÞESS AÐ FÁ LÍFEYRI Í FRAKKLANDI.

Tékkneskur ríkisborgari á eftirlaunum, með aðalaðsetur í Frakklandi og aukaaðsetur í Tékklandi, bað eftirlaunasjóð franska ríkisins um að útvega sér nauðsynlegt eyðublað til þess að honum yrðu veitt réttindi til þess að fá lífeyri sinn greiddan í Frakklandi. Hlutaðeigandi frönsk yfirvöld höfnuðu beiðninni þar eð ástæður hennar væru óljósar. Eftir að SOLVIT í Frakklandi hafði samband við fyrrnefnd yfirvöld samþykktu þau að senda tékkneska ríkisborgaranum eyðublaðið sem hann þarfnaðist. Lausn fundin á 7 vikum

HOLLENSKT FÉLAG FÆR LOKS VIRÐISAUKASKATT ENDURGREIDDAN FYRIR TILSTUÐLAN SOLVIT Á SPÁNI.

Hollenskt félag, sem hafði veitt þjónustu á Spáni, óskaði, í júlí 2002, eftir því að fá virðisaukaskatt endurgreiddan. Samkvæmt lögum ESB skal, í slíkum tilvikum, eigi líða meira en sex mánuðir þar til endurgreiðsla fer fram. Samt sem áður höfðu hlutaðeigandi spænsk yfirvöld ekki enn innt endurgreiðsluna af hendi tveimur og hálfu ári síðar. SOLVIT á Spáni hafði samband við skattyfirvöld og náði fram endurgreiðslu réttrar fjárhæðar auk vaxta. Lausn fundin á fjórum vikum.

MÁLSMEÐFERÐ VIÐ OPINBER INNKAUP LEIÐRÉTT FYRIR TILSTUÐLAN SOLVIT Í FRAKKLANDI.

Ferðamálaráð eins af frönsku umdæmunum handan hafsins stóð fyrir opinberu útboði þar sem áhugasömum aðilum gafst kostur á að bjóða í þjónustuviðskipti. Frekari upplýsinga var unnt að leita með því að senda bréf í pósti eða símbréf. Belgískt ráðgjafarfyrirtæki, sem hugðist senda tilboð, sendi beiðni um frekari upplýsingar í símbréfi en fékk aldrei í hendur nauðsynleg gögn til þess að það gæti sent tilboð. SOLVIT í Frakklandi blandaði sér í málið og hafði samband við hlutaðeigandi yfirvöld sem viðurkenndu að mistök hefðu átt sér stað við meðferð útboðsins. Í framhaldi af því ógiltu þau hið upphaflega útboð og stóðu fyrir nýju til þess að gera öllum félögum kleift að keppa á jafnréttisgrundvelli. Lausn fundin á 7 vikum.

KRAFA YFIRVALDA Á KÝPUR UM HEILBRIGÐISVOTTORÐ VEGNA INNFLUTNINGS Á APPELSÍNUSAFA FRÁ HOLLANDI FELLD NIÐUR.

Hollenskt félag flytur appelsínusafa út frá Brasilíu um Holland til ýmissa ESB-landa. Á Kýpur var framvísun heilbrigðisvottorðs fyrir vöru félagsins gerð að skilyrði fyrir markaðssetningu hennar. Þar eð skilyrði þetta fer í bága við lög ESB hafði félagið samband við SOLVIT og óskaði aðstoðar. SOLVIT á Kýpur tókst að sannfæra embættismenn hlutaðeigandi ráðuneytis um að samkvæmt lögum ESB bæri að samþykkja vörur frá öðrum aðildarríkjum án þess að gera kröfu um heilbrigðisvottorð. Í framhaldi af því breytti ráðuneytið reglunum. Með þessu leysti SOLVIT á Kýpur ekki aðeins þetta tiltekna vandamál heldur fékk og fram kerfisbreytingu til þess að koma í veg fyrir frekari vandkvæði á þessu sviði. Lausn fundin á þremur vikum.

EIGINMAÐUR ÞÝSKS RÍKISBORGARA FRÁ LANDI UTAN ESB FÆR VEGABRÉFSÁRITUN TIL FRAKKLANDS.

Kona nokkur, Þýskur ríkisborgari sem býr í Tyrklandi ásamt þarlendum eiginmanni sínum, vildi heimsækja Frakkland sem ferðamaður. SOLVIT í Frakklandi hafði afskipti af málinu þegar hjónin mættu erfiðleikum við að fá vegabréfsáritun ferðamanna hjá ræðisskrifstofu Frakklands í Istanbúl. Eiginmaðurinn fékk vegabréfsáritun eftir að misskilningur hafði verið leiðréttur. Lausn fundin á innan við 10 vikum.

RÍKISBORGARI ÞRIÐJA LANDS KVÆNTUR RÍKISBORGARA INNAN ESB FÆR DVALARLEYFI TIL FIMM ÁRA.

Hollensk yfirvöld neituðu að veita umsækjanda, sem er ríkisborgari þriðja lands kvæntur ríkisborgara innan ESB, réttindi til þess að stunda atvinnu án atvinnuleyfis. Hann þyrfti að sækja um leyfi en afgreiðsla þess gæti tekið allt að sex mánuði. Hollensku SOLVIT-miðstöðinni tókst að sannfæra hollensk yfirvöld um að á grundvelli laga ESB hefði umsækjandinn sama búseturétt og réttindi til að stunda atvinnu og eiginkona hans. Innan þriggja vikna fékk umsækjandinn í hendur úrskurð frá hinum hollensku yfirvöldum þess efnis að hann myndi fá dvalarleyfi til fimm ára og myndi geta stundað vinnu í Hollandi án takmarkana.

ARMENSKUR EIGINMAÐUR GAT SAMEINAST SPÆNSKRI EIGINKONU SINNI SEM VAR BÚSETT Í ÞÝSKALANDI.

Armenskur eiginmaður spænsks ríkisborgara sótti um vegabréfsáritun hjá sendiráði Þýskalands í Armeníu til þess að geta sameinast eiginkonu sinni sem býr og starfar í Þýskalandi. Að mánuði liðnum höfðu þýsk yfirvöld enn ekki veitt vegabréfsáritunina. SOLVIT-miðstöðin í Þýskalandi gat greitt úr málinu og eiginmaðurinn fékk vegabréfsáritunina. Lausn fundin á innan við viku.

SOLVIT Í ÞÝSKALANDI AÐSTOÐAR PÓLSKAN LÆKNI.

Pólskur læknir með öll tilskilin starfsréttindi gerði nokkrar árangurslausar tilraunir til þess að fá starfsréttindi sín viðurkennd af þýskum yfirvöldum. Með því að framvísa lögfræðiáliti frá framkvæmdastjórninni því til staðfestingar að pólska lækninum bæri full viðurkenning tókst SOLVIT í Þýskalandi að tryggja honum eins árs bráðabirgðaatvinnuleyfi meðan beðið væri lokaniðurstöðu í málinu.

Back to the top of the page 

Mikilvæg tilkynning lagalegs eðlis | Uppdráttur af vefsetri | Hafðu samband | Gagnlegir tenglar