ÞÚ GETUR LAGT KVÖRTUN ÞÍNA FYRIR HJÁ SOLVIT MEÐ ÞVÍ AÐ BEITA EINNI AF EFTIRTÖLDUM AÐFERÐUM:
Vinsamlegast lestu eftirfarandi upplýsingar vandlega áður en þú leggur fyrir mál hjá SOLVIT:
-
ÞÚ ERT HVATTUR/HVÖTT TIL ÞESS AÐ LESA YFIRLÝSINGU SOLVIT UM FRIÐHELGI EINKALÍFSINS VIÐVÍKJANDI PERSÓNULEGUM GÖGNUM ÞÍNUM ÁÐUR EN ÞÚ LEGGUR ÞAU FRAM.
-
VINSAMLEGAST VEITTU ÞVÍ ATHYGLI AÐ ÞEGAR NAUÐSYNLEGT ER AÐ VIRÐA FRESTI SAMKVÆMT INNLENDUM LÖGUM TIL ÞESS AÐ VIÐHALDA RÉTTI ÞÍNUM HEFUR FRAMLAGNING MÁLS HJÁ SOLVIT ENGIN ÁHRIF Á SLÍKA FRESTI. HEIMILI INNLEND LÖG ÞÉR T.D. AÐ ÁFRÝJA STJÓRNSÝSLUÚRSKURÐI INNAN ÞRIGGJA MÁNAÐA GETUR ÞÚ KÆRT ÚRSKURÐINN TIL SOLVIT, EN ÞÚ ÆTTIR EINNIG AÐ GÆTA ÞESS AÐ SENDA KÆRUNA INNAN FRESTSINS VILJIR ÞÚ EKKI FYRIRGERA FYRRNEFNDUM, FORMLEGUM RÉTTI ÞÍNUM.
-
SOLVIT ER EKKI NETKERFI ÞAR SEM UNNT ER AÐ NALGAST UPPLÝSINGAR EÐA LÖGFRÆÐIRAÐGJÖF.
(TIL ÞESS AÐ FÁ AÐGANG AÐ UPPLÝSINGAVEITUM UM RÉTT ÞINN Í EVRÓPU EÐA ÓSKIR ÞÚ EFTIR LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF SEM EINSTAKLINGUR, SMELLTU HÉR)
-
SOLVIT FJALLAR EKKI UM VANDAMÁL SEM KOMA UPP MILLI FYRIRTÆKJA EÐA MILLI NEYTENDA OG FYRIRTÆKJA EÐA UM KVARTANIR VIÐVÍKJANDI STOFNUNUM ESB.
(TIL ÞESS AÐ FÁ AÐGANG AÐ NETKERFUM ÞAR SEM FJALLAÐ ER UM VANDAMÁL SEM SOLVIT TEKUR EKKI TIL, SMELLTU HÉR)
Stefnuyfirlýsing um meðferð mála sem milliliðir leggja fyrir.
Þjónusta SOLVIT er gjaldfrjáls. SOLVIT mun taka til meðferðar kvartanir sem borgarar eða fyrirtæki leggja fram eða milliliðir sem koma fram fyrir þeirra hönd. Í síðara tilvikinu, krefji milliliðir skjólstæðinga sína um greiðslu fyrir þá þjónustu sem þeir láta þeim í té, kann SOLVIT að gera kröfu um að viðkomandi skjólstæðingi sé gert ljóst að unnt sé að nýta sér ókeypis þjónustu SOLVIT og kann að kjósa að hafa beint samband við hann. Ennfremur, sé milliliðurinn löglærður ráðgjafi, kann SOLVIT að gera kröfu um að kvartanir séu lagðar fram ásamt lagalegri greiningu og heildarlýsingu á staðreyndum málsins. SOLVIT kann að neita að taka mál til meðferðar sé þessum skilyrðum ekki fullnægt eða ekki reynist unnt að gera það.