Skip to page content, site navigation or site search.
You are here: EUROPA > Framkvæmdastjórn Evrópu > Atvinna & Félagsmál > EURES > Hjálp & Stuðningur > Internetþjónusta EURES
Gagnagrunnur EURES um laus störf er uppfærður daglega. Upplýsingar um vinnumarkaðinn, ásamt upplýsingum um lífs- og starfsskilyrði eru uppfærðar reglulega af umsjónarmönnum EURES í hverju landi.
Ekki aðeins býður EURES vefsíðan upp á upplýsingar um lausar stöður á Evrópska efnahagssvæðinu og í Sviss, heldur einnig upplýsingar um leitni vinnumarkaðarins í öllu EES löndum og svæðum, hagnýtar upplýsingar um lífs- og starfsskilyrði í Evrópu og einnig gagnagrunn á netinu sem inniheldur ferilskrár atvinnuleitenda.
Sá hluti vefsíðunnar sem kallast Skilyrði fyrir búsetu og vinnu inniheldur upplýsingar um fjölda mikilvægra atriða, svo sem að finna húsnæði, finna skóla, skatta, framfærslukostnað, heilsugæslu, félagslöggjöf, samanburðarhæfni menntunar og hæfis, o.s.frv.
EURES vefsíðan um frjálst flæði vinnuafls er tiltæk á tuttugu og fimm tungumálum Evrópusambandsins/EES, sem eru: búlgarska, danska, eistneska, enska, finnska, franska, gelíska, gríska, hollenska, íslenska, ítalska, lettneska, litháíska, maltneska, norska, portúgalska, pólska, rúmenska, slóvakíska, slóvenska, spænska, sænska, tékkneska, ungverska og þýska.
Markmið okkar er að veita eins miklar upplýsingar og mögulegt er á öllum tuttugu og fimm tungumálunum, en að minnsta kosti á ensku, frönsku og þýsku.
Að svo komnu máli eru upplýsingarnar í hlutanum „Búseta og vinna“ (Living and Working) tiltækar á ensku, frönsku, þýsku og á þjóðtungu landsins sem í hlut á.